Jæja, kannski maður ætti að skrifa eitthvað um árið 2008...
Ég byrjaði árið heima hjá pabba og endaði svo í partýum með fólkinu mínu... Skrautlegt
Janúar
Ég skellti mér aðeins í skóla, Borgó... Var þar eina önn, ágætis tilbreyting þó þetta sé kannski ekkert það skemmtilegasta
Litla skvízan hennar Betu var skírð, Bryndís Eva
Svo í janúar fór ég með Helgu, Varða, Andrési, Önnu og Auði til London þar sem við skelltum okkur á SPICE GIRLS tónleika í O2 höllinni! Þetta var aðeins of skemmtileg ferð! http://guggavs.bloggar.is/gagnasafn/2008/02/
Febrúar
Bara frekar rólegur mánuður... Skóli og bara djamm líklega
Mars
Var komin með ágætis skólaleiða Skrítið!
Páskarnir voru þennan mánuðinn...
Var hjá pabba um páskana að vinna og svo var mikið djamm! Erfið vinna þessa dagana Fékk ekki mikla vorkunn
Apríl
Litla systir var fermd! Tíminn flýgur!
Maí
Prófin byrjuðu
Skólinn kláraðist
Ástrós og Elli eignuðust prinsessu
Byrjaði í nýrri vinnu
Júní
Reunion hjá Hólabrekkuskóla Gaman að hitta alla aftur eftir svona langan tíma!
Skellti mér á Bíladaga með Valþóri... Meira ruglið!
Júlí
Ég og Þórunn fengum ÓGEÐ af Íslandi!! Og skelltum okkur í það að panta ferð til Mallorca daginn EFTIR! Ótrúlega gaman!
Freydís hélt uppá afmælið sitt sem var mjög skrautlegt
Þar kynntist ég einmitt honum Eika mínum
Ruglaðasta útilega sem ég hef farið í... Ákváðum í afmælinu að fara í útilegu daginn eftir... Ég, Freydís, Eiki og Haffi... Ásamt Palla og Alla og svo Sollu líka... RUGL!!
Ágúst
Þjóðhátíð!! Þarf ekki að segja meira! Bara SNILLD!
September
Ég átti afmæli og átti æðislegan afmælisdag
Bústaðaferð
Fékk mér annað tattoo
Ég ákvað að skella mér til Köben í des með Múttu, Binna, Afa og Hrönn... Svo ákvað Eiki að koma með líka (Paraferð )
Sumarið tók enda
Október
Krepputal að drepa alla!!
Nóvember
Árshátíð í vinnunni
Jólahlaðborð með stelpunum... Meira ruglið!
Desember
Loksins kom að Köben Æðisleg ferð!
Jólahlaðborð með vinnunni í Perlunni
Tekið því rólega eftir Köben og verslað jólagjafir... Gasalega skemmtilegt...
Ekkert jólaskap!!
En jólin komu nú samt...
Var heima hjá múttu á aðfangadag með familíunni + ömmu og Bigga...
Jólaboð, jólaboð, jólaboð.... Já endalaust! + Vinna!!
Komst loooksins í smá frí 30.des! Skellti mér í Hveró og var þar fram að nýju ári...
Vil þakka öllum fyrir frábært ár
07. janúar 2009 klukkan 14:58
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir 1 athugasemd
Jæja, kannski maður ætti að blogga smá? Drepur mann varla Held það sé nú ekkert voða mikið að frétta... Bara alltaf þetta sama, vinna, ræktin, kæró, vinirnir Svo er það Köben eftir viku Er farin að hlakka svolítið til að komast í burtu, þó það sé kannski ekkert voða ódýrt en verður gott að fá frí og gera ekkert
Er samt ekki alveg að skilja hvað þessi tími líður endalaust hratt... Nóvember er nýbyrjaður og mér finnst bara mjög stutt síðan ég átti afmæli! En neinei, núna er bara minna en mánuður í jólin takk fyrir! Ekki alveg að átta mig á þessu og nenni alveg núll að byrja versla jólagjafir og hugsa hvað maður á að gefa hverjum! Hlakka nú samt til að fá rosa góðan jólamat Haha! Er samt að vinna alveg slatta um jólin en það er nú ekki eins og maður sé í einhverri erfiðisvinnu En er svo í fríi um áramótin Spurning hvort maður verði aftur hjá pabba á gamlárs?
Kíkti til Betu um daginn, mér finnst mjög stutt síðan hún var röltandi um með bumbuna útí loftið en neinei Bryndís Eva er að verða 1 árs eftir rúmar 2 vikur! Líður aðeins of fljótt!
Svo er ég að fara á jólahlaðborð með stelpunum á föstudaginn, verður pottþétt eh skrautlegt Trúi ekki öðru
En jæja, ætla að fara kíkja á dvd og láta mér leiðast hérna á næturvaktinni...!
27. nóvember 2008 klukkan 02:00
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd
Haha var að lesa blað hérna í vinnunni um hvað ungt fólk er ógáfað
Dóri fór út í búð seint í gærkvöldi þegar næturvaktin í 10-11 var mætt. Það er nýbúið að opna allan sólahringinn! Þegar Dóri kom á kassann var öryggisvörður að afgreiða.
Dóri spyr öryggisvörðinn: "Eruð þið með öryggisvörð hér að staðaldri við afgreiðslu?"
Öryggisvörðurinn: "Að staðaldri?! Ég er bara 23 ára!"
Dóri brosti og útskýrði svo fyrir manninum hvað "að staðaldri" þýðir
Ég las um daginn um konuna sem ætlaði að kaupa gellur í kvöldmatinn. Ungu dömurnar í afgreiðslunni könnuðust ekkert við gellur og töluðu við yfirmann sinn sem sagður var um tvítugt. Hann benti konunni á að ungu stúlkurnar hjá honum væru sko ekki kallaðar gellur og hún skyldi ekki vera með neinn dónaskap!
Hún keypti bara fiskibollur í dós í kvöldmatinn.
Systir mín var að segja mér frá því að samstarfsfélagi hennar fór í verslun sem hún vissi að væru með í sölu herðatré.... Nema hvað, hún finnur þau ekki og spyr einhvern unglingsstrák hvar herðatréin séu geymd? Strákurinn gjörsamlega tómur á svipinn: "Það er búið að pakka niður sumarvörunum." VÁ! konan bara horfði á hann hvort hann væri ekki að grínast og fór svo að lýsa fyrir honum hvað herðatré væri: "Þetta er notað til að hengja föt á og er með svona krók." Strákurinn: Nei, ég held það sé ekki til.
Hann hafði ekki hugmynd um hvað herðatré væri!
Kona fór í matvöruverslun og fór á kassann með einhverjar 2 vörur og sagði við kassastarfsmanninn (sem var líka unglingsstrákur) : "Ég ætla að fá hvoru tveggja." Strákurinn bara horfði á hana: "Hvað er hvoru tveggja?" Þá galaði starfsmaðurinn á næsta kassa (líka unglingsstrákur): "Hey! ég lenti í þessu um daginn, þetta þýðir að hún ætlar að fá þetta bæði!"
Maður fór á bensínstöð um daginn og ætlaði að kaupa þurrkur á bílinn. Hann spurði ungan mann þarna hvort hann ætti ekki vinnukonur fyrir þennan bíl og benti honum á bílinn fyrir utan. Ungi maðurinn horfði undrandi á manninn og sagði: "Nei við erum bara hérna með stráka til að setja bensín á bílinn en engar vinnukonur." Maðurinn varð ekki síður undrandi og spurði: "Ég sé ekki betur en að þið séuð með vinnukonur þarna uppá vegg." Augnablik sá maðurinn bregða fyrir ótta hjá stráknum og sá hvað hann hugsaði (líklegast snarruglaður kúnni). En þegar hann horfði á það sem ég var að horfa á þá kom skilningsglampi í augun hans og hann sagði: "Jááá! þú meinar glugga clean!"
09. október 2008 klukkan 02:43
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir 3 athugasemdir
Kræst... Er komin með svo mikið ógeð á þessu endalausa krepputali og áhyggjum fólks yfir lífinu... Voða lítið sem við getum gert í þessu... SóSorrý!
En þar sem ég er nú á þessari frábæru næturvakt, að farast úr þreytu og langar aðeins of að fara heim að kúra með kæró ákvað ég bara að babla eh hérna
Enn ein helgin búin, var að vinna alla helgina... Var bara voða löt á föstudagskvöldið og Eiki kíkti til mín og tókum sameiginlega leti á þetta
Svo á laugardagskvöldið var semí staffadjamm, vorum reyndar bara 4 að drekka heima hjá "yfirkonunni" og svo var kíkt í bæinn.... Ótrúlegt en satt í fyrsta skiptið síðan í JÚNÍ..! Og það sannaði sig bara að ég hef ekki misst af neinu Allt eins...
Og svo var náttla bara þynnka og vinna á sunnudaginn, svaka skemmtilegt...
Vorum tvær að vinna, báðar alveg ágætlega þunnar og ekki alveg að nenna að vera vinna... Dagvaktin bjargaði samt alveg kvöldinu (þátturinn haha) Djöfulsins snilld eru þessir þættir... Og að detta þetta í hug... "klæða sig í sultu" Og núna er "Gott í kroppinn" alveg orðin voða vinsæl setning hjá fólki...
Svo var bara leti í dag Afrekaði reyndar ræktina með Guðrúnu frænku og skellti mér í ljós þar sem ég var næstum orðin glær!
Kíktum svo í bíó á Reykjavík-Rotterdam... Hún var bara frekar góð Mæli alveg með henni.
En jæja, ætla að fara skella Friends í eða allavega eh til að horfa á Þarf að halda mér vakandi aðeins of lengi....!
07. október 2008 klukkan 01:18
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd
Veit reyndar ekki afhverju ég er að blogga hérna, þar sem fólk er ekkert að kommenta... Eeeen mér leiðist allsvakalega í vinnunni og er að látast úr þreytu ákvað ég bara að tjá mig eh hérna....
Ýmislegt búið að gerast...
Það kom loksins að bústaðahelginni og var bara mjög gaman og rosa gott að komast aðeins í burtu og gera, tjahh ekkert Þarf klárlega að endurtaka þetta
Er svo bara búin að vera vinna uppá síðkastið, næturvaktir um helgina... Ekkert gasalega spennandi eeen var hvort er ekkert að fara djamma svo þetta er í key... Monní
Við Eiki kíktum í bíó á laugardaginn, á Pinapple Express.... Bara frekar fyndin mynd
Svo var múttu að "bjóða" mér að skella mér til Köben í byrjun des, þar sem hún, Binni, afi og Hrönn eru að fara og verða með íbúð fyrir 6-8... Mikið að pæla í að skella mér bara og Eiki held ég barasta líka Tjékka á flugi næstu daga....
Ooog núna eru ekki NEMA 2 klukkutímar í að ég þurfi að gera eh hérna og 3-4 að ég komist heim í smá frí.... Pæling að skella sér í WorldClass fljótlega eftir vinnu eða hvort það sé bara svefn?? Kemur í ljós Ætla allavega að skella mér austur seinnipartinn...
Og mig langar líka að segja hvað mér finnst GLATAÐ að sumarið sé BÚIÐ!! og það sé bara farið að verða kalt úti!! Og hvaaað er málið með þetta SKÍTA veður eeendalaust?? Alveg komið fínt í bili.... Gefa okkur smá breik, það fer að koma snjór og eh ógeðisleiðindar veður! Já ein ekki sátt með veðurfar Íslands eins og er og á veturna! Flytja bara eh út yfir veturinn, þar sem maður þarf ekki að klæða sig í öll fötin sem maður á...
En jæja, ætla ekki að röfla meira um veðrið... Það er víst ekkert að fara breytast, Ísland er bara svona... Lítið hægt að gera
Ætla bara að fara horfa á Gossip Girl aftur, systir mín er að reyna koma mér inní þetta.... Ooog reyna halda mér vakandi... Farið að ÞRÁ svefn!
-LaTeR-
22. september 2008 klukkan 05:05
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir 3 athugasemdir
Jæja, kannski maður geri bara smá blogg þar sem ég hef alveg NÚLL að gera hérna í vinnunni og leiðist alveg rosalega!
Ekkert voða mikið búið að gerast... Bara vinna og hafa það gott...
Svo átti maður náttla afmæli núna á miðvikudaginn, 21 árs... Þó ég hafi nú fengið tilkynningu um það að ég væri "ekki deginum eldri en 19" haha!
Átti alveg æðislegan afmælisdag, vaknaði hjá Eika og hann fór aðeins í vinnuna og ég var bara í algjöru leti! Svo þurfti hann að fara á fund og ég kíkti bara aðeins heim á meðan... Svo um kvöldið bauð hann mér í Baðstofuna í Laugum , ekkert lítið næs þarna! Vorum bara í kósý í einhverja 4 tíma Fórum svo bara heim að horfa á mynd og kúra okkur
Vaknaði svo í morgun og ákvað að kíkja á ömmu og afa á Selfossi fyrst maður var nú í nágrenninu... Kíkti svo bara í bæinn og endaði í Kringlunni með Þórunni... Fór svo á kickbox æfingu með Eygló, tekið alveg þokkalega á því og svo bara farið að vinna alveg freeekar þreytt! Verður gott að komast heim að sofa...
En svo verður bara unnið um helgina, ekkert djammrugl.... Komin með smá leið á þessu, er alltaf eins og svo líður manni bara yfirleitt illa daginn eftir! Hef td ekki djammað í Reykjavík síðan einhverntímann í Júní og ég er bara ekkert sorry hehe....
Svo þarnæstu helgi er það bústaður og ég hreinlega get ekki beðið Verður ÆÐI
En jæja, ætla að fara gera eh skemmtilegt
*Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar*
05. september 2008 klukkan 02:26
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd
Jæja, þá styttist ennþá meira í Þjóðhátíð Hreinlega get ekki beðið... Er eins og lítið barn að bíða eftir jólunum....! Haha!
En um helgina skellti ég mér bara í Hveragerði... Freydís var að halda uppá afmælið sitt á föstudeginum. Var búin að gleyma því hvað er gaman að vera bara í partýi með skemmtilegu fólki alla nóttina og ekkert að fara í bæinn....
En afmælið var æðislegt, vorum að dansa samkvæmisdansa örugglega 1/3 af nóttinni Geggjað gaman...
Gisti svo bara hja Freydísi um nóttina, og viti menn.... Vöknuðum bara ekki þunnar Ákváðum að skella okkur í sund því þð var svo gott veður...
Svo seinnipartinn ákváðum við að skella okkur í útilegu með Eika og Haffa á Hellishóla... Fórum að redda okkur svefnpoka og græja föt fyrir ferðina... Skelltum okkur svo í Bónus með stráknum og svo bara af stað!
Fórum að hitta Palla og Alla á Hellishólum og svo var bara byrjað að borða, drekka og horfa á Borat! (Já Palli var með hjólhýsi með tv og örugglega öllum stöðvum) Svo fórum við að tjalda litla tjaldinu okkar svo það yrði nú gert, áður en allir yrðu blekaðir...
Sátums svo bara úti í fortjaldi að drekka og taka tequilaskot! Endaði ekkert alltof vel hehe...
Ákváðum svo að fara á einhvern bar sem var þarna og þar var haldið áfram að dansa Enduðum svo í einhverju rugli á trampolíni og flugdrekastuld!
Vöknuðum svo kl 9 um morguninn! Að deyja úr súrefnisskorti!! 4 í litlu kúlutjaldi... ýmindið ykkur!! Skreið í buxur og bara út að reyna aðeins að kúra meira en gekk ekkert alltof vel þar sem strákarnir voru aðeins OF hressir! Og ég með hljómsveit í hausnum! Svo var bara drifið sig heim.... Skelltum okkur í þynnkumat á kfc og svo í þynnkusund! Bjargaði öllu...
Svo fórum við Freydís bara heim til hennar, uppí sófa og kveiktum á Greys!
Kíkti svo á hann pabba minn og skruppum uppí Þrastarlund að tjékka á stadusnum og segja hæ við Maju
Þessi helgi var alveg æðisleg! Verður endurtekið, annaðhvort í útilegu eða bústað! Alveg klárt mál....
Svo eru myndir inná myspace-inu mínu
22. júlí 2008 klukkan 14:05
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd
Jæja, þá er komin vika síðan maður kom heim frá Mallorca!!! Langar svo að vera þarna ennþa! Var svooo gaman... Við Þórunn erum alltaf á leiðinni að púsla saman ferðasögu... Þetta verður örugglega allt komið í eitt loksins þegar við komum því í verk!
En síðan ég kom heim er ég bara búin að vera á næturvöktum og ekki gera neitt! Kíkti reyndar á skvízuna hennar Ástrósar... Algjör dúlla Þarf að kíkja á hana aftur...
Svo er bara næturvakt í nótt, þá er ég búin að vera viku á næturvakt og svo er ég komin í helgarfrí Loooksins... Ekki það að það sé e-ð mikið að gera á þessum næturvöktum ennþá... Reyndar 2 fluttir inn, en þarf bara að hugsa um strákinn, koma honum á fætur og koma honum út... Ekki mikið mál, hehe! En svo fer rest að flytja inn og þá verður kannski eh meira að gera
En svo er spurning hvað maður eigi að gera um helgina þar sem maður er í fríi... Freydís ætlar að halda uppá afmælið sitt á föstudaginn og kannski maður verði bara í Hveró um helgina, pæling...
En mál málanna er auðvitað ÞJÓÐHÁTÍÐ Hlakka svooo til... Búin að hlusta á þjóðhátíðarlög í allan dag og fæ bara hroll 2 VIKUUR!!!
Ætla ekki allir að koma á skemmtilegustu hátíð ÁRSINS?!?!
16. júlí 2008 klukkan 19:12
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd
Enn ein helgin búin og viti menn, tók því bara rólega á föstudaginn Var e-ð voða löt og nennti bara engu svo ég og Kristján komum okkur fyrir uppí sófa og lágum þar fram á nótt Ekki slæmt að vakna svo á laugardeginum ekkert þunn og skella sér í World Class... Alveg merkilegt hvað eru alltaf margir þarna snemma á laugardögum....
Um kvöldið kíkti ég svo til Töru þar sem við ákváðum að kíkja aðeins á bæjarlífið... Byrjuðum bara heima hjá henni og svo kíktu Árni, Gaui og Kalli? til okkar og svo skelltum við okkur bara í bæinn... Var tekið smá rölt á milli staða og enduðum svo á Hressó... Hitti Einar, Jónda & co (erum öll að verða húsgögn þarna ) Hitti líka Bjössa og Villa, mjög langt síðan maður hefur rekist á þá... Og ekki má gleyma honum Óla sem ég hélt að væri bara gufaður upp Svo ákvað Tara bara að skella sér heim þannig að ég varð bara eftir með Húsgögnunum Allir ofurhressir... Svo ákvað Ómar að koma kíkja á okkur og vorum bara á Hressó til lokunar, svona eins og svo oft áður Svo var hann Björgvin svo góður að koma ná í mig, Einar og Ómar Takk kall
Vaknaði svo á sunnudeginum alveg að kafna úr hita... Og hélt ég væri bara ekkert þunn, kíkti til Töru að ná í bílinn minn og svo til múttu þar sem hún kom heim um nóttina og viti menn... Mín varð auðvitað smá þunn... Verður einhver að finna undralyf við þessu
Svo í gær fór ég á einhverja fyrirlestra í sambandi við vinnuna, sem betur fer var Þórunn líka að fara svo ég lifði þetta af... Fór svo á næturvakt um kvöldið til kl 8 í morgun og beint aftur niðrá Grand hótel aftur á fyrirlestra og ég og Þórunn höfum pottþétt slegið MET í ferskleika... Gátum ekki haldið augunum opnum! En þraukuðum þetta Skellti mér svo bara heim að sofa loksins og er aftur mætt í vinnuna, en sem betur fer enginn fyrirlestur á morgun.
En jæja... Ætla að fara gera EKKERT í vinnunni og bíða eftir að Bíladagar bresti á
10. júní 2008 klukkan 23:36
Guðrún Vilborg Sigmundsdóttir Engin athugasemd